Starfsáætlun Alþingis úr sambandi til 20.apríl

Forsætisnefnd Alþingis hefur tekið starfsáætlun Alþingis úr sambandi til 20.apríl. Í tilkynningu frá Alþingi segir að þetta hafi verið gert í ljósi þeirra válegu atburða sem nú ganga yfir samfélagið. Þá segir einnig í tilkynningunni:

Á þeim tíma verða eingöngu boðaðir þingfundir til að takast á við brýn mál sem tengjast COVID-19 heimsfaraldrinum. Brottfall starfsáætlunar þýðir einnig að komið getur til þingfunda á þeim tíma sem áður var reiknað með fundahléi um páska, en þá eingöngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráðstafana vegna ástandsins og atbeina Alþingis þarf til. Enn fremur samþykkir forsætisnefnd að hefðbundin fundaáætlun fastanefnda sé tekin úr sambandi og eingöngu verði boðað til nefndafunda í þeim nefndum sem þurfa að taka til umfjöllunar þingmál sem tengjast viðbrögðum við COVID-19 faraldrinum. Óski aðrar fastanefndir eftir sem áður eftir því að funda þarf að sækja um það sérstaklega til forstöðumanns nefndasviðs og fá fyrir því samþykki forseta. „

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila