Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ekki hlynntir stofnun Þjóðarsjóðs.
Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú hlynnt/ur stofnun Þjóðarsjóðs?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 89.8%
Já 8,2%
Hlutlaus 2%
Alls voru greidd 508 atkvæði