Ungverjaland næst besta landið í Evrópu fyrir Gyðinga
Samkvæmt samtökunum European Jewish Association í Brussel, er Ungverjaland Viktors Orbans annað gyðingavænasta landið í Evrópu á eftir Ítalíu.
Fréttin af rannsókninni barst um svipað leyti og EJA heiðraði ungverska innanríkisráðherrann Sándor Pintér fyrir „störf hans til að bæta almannaöryggi og berjast gegn gyðingahatri“ skv. tilkynningu Samtaka ungverskra gyðinga „EMIH“ s.l. þriðjudag.
Á árlegri ráðstefnu sinni í Búdapest á mánudaginn kynnti EJA um skýrsluna,sem raðar Evrópulöndunum upp eftir flokkum eins og gyðingahatri og and-Ísraelskum sjónarmiðum.
Forseti EJA, Alex Benjamin, hrósaði innanríkisráðherra Ungverjalands fyrir störf hans og viðleitni ungversku ríkisstjórnarinnar. Hann nefndi, að samvinna milli löggæslustofnana og gyðingasamfélagsins hefði þróast undir ráðuneyti Pintéra og að stjórnvöld hefðu lýst yfir núll umburðarlyndi gagnvart gyðingahatri.
Ásakanir um ungverskt gyðingahatur hafa ekki aðeins komið frá fréttamiðlum, sem eru fjandsamlegir landinu, heldur einnig frá fremstu stjórnmálamönnum.
Að sögn ísraelska sendiherrans í Búdapest, Yacov Hadas-Handelsman, er Ungverjaland eitt af fáum löndum í Evrópu þar sem gyðingar geta gengið öruggir á götum úti.
Ítalía er besta landið fyrir gyðinga í Evrópu en Belgía og Pólland koma neðst á listanum sem sjá má hér að neðan:
1. Ítalía
2. Ungverjaland
3. Danmörk
4. Bretland
5. Austurríki
6. Holland
7. Svíþjóð
8. Þýskaland
9. Spánn
10. Frakkland
11. Pólland
12. Belgía