Þrettán Færeyingar sæmdir fálkaorðu fyrir björgunarstörf eftir flugslysið á Mykinesi

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sæmdi þrettán Færeyinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir hugrekki og þrautseigju við björgunarstörf eftir flugslysið á Mykinesi sem varð þann 26. september 1970. Slysið varð með þeim hætti að vél Flugfélags Íslands, TF-FIL, rakst á hæsta tind eyjarinnar, Knúk, í aðflugi að flugvellinum í Vogum. Átta manns fórust í slysinu, einn Íslendingur og sjö Færeyingar, en 26 manns komust lífs af. Vélin brotlenti í um 450 metra hæð og vann björgunarliðið þrekvirki við afar erfiðar aðstæður.

Magnús Þór Hafsteinsson ritaði bók um slysið fyrir tveimur árum en í bókinni er einmitt fjallað um hið frækilega björgunarafrek sem heimamenn unnu í kjölfar slyssins en smella má hér til þess að lesa og heyra nánar um bókina. Þrettán þeirra björgunarmanna sem komu að aðgerðu eru enn á lífi. Við hátíðlega athöfn í Þórshöfn í Færeyjum í dag færði forseti þeim þakkir frá íslensku þjóðinni og sæmdi þau heiðursmerki fálkaorðunnar. Þau eru:

Aksel Niclasen, fyrrverandi sjómaður.
Annfinnur á Túvuvølli Jensen, fyrrverandi fiskverkamaður.
Bjarni Hansen, bóndi.
Dánjal Danielsen, fyrrverandi vélstjóri.
Jaspur Joensen, fyrrverandi skipstjóri.
Jákup í Løðu, fyrrverandi kennari.
Johan Hendrik Olsen, fyrrverandi sjómaður.
Jóhannes Fredrik Meinhard Summaldur Joensen, fyrrverandi sjómaður.
Karl Mikkelsen, fyrrverandi sjómaður.
Katrin Dahl hjúkrunarfræðingur.
Kjartan Simonsen, fyrrverandi smiður.
Leon Heinesen, fyrrverandi vitavörður.
Reðin Leonsson, fyrrverandi lögreglumaður.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila