Eftir að Rússar takmörkuðu gasflæðið til Þýskalands, gætu heilar iðnaðargreinar í Þýskalandi neyðst til að loka í langan tíma.
Minna gas frá Rússlandi kemur harkalega niður á Þýskalandi
Robert Habeck, viðskipta- og iðnaðarráðherra Þýskalands, segir í viðtali við Der Spiegel, að heilu atvinnugreinarnar í þýskum iðnaði gætu neyðst til að loka í langan tíma, vegna takmarkaðs gas frá Rússlandi.
Í síðustu viku minnkaði gasflæði um Nord Stream-leiðsluna frá Rússlandi til Þýskalands um allt að 60 %.
Rússneski gasrisinn Gazprom sem er í eigu ríkisins heldur því fram, að þetta séu tæknileg vandamál sem stafa af refsiaðgerðum Vesturlanda (segjast vera að bíða eftir varahlutum í dælur frá Kanada, sem ekki má afhenda vegna viðskiptabanns). Þýskir stjórnmálamenn telja hins vegar að skrúfað hafi verið fyrir gasið vegna pólitískrar ákvörðunar rússneskra yfirvalda.
Hvað sem því líður, þá hefur Þýskaland orðið fyrir bráðum gasskorti núna, sem hefur víðtækar efnahagslegar afleiðingar fyrir þetta iðnaðarríka land.
Græninginn Robert Habeck, viðskiptaráðherra Þýskalands, segir við Spiegel, að tilgangur Vladimírs Pútíns sé að „kynda undir öryggisleysi og ótta“ hjá þýsku þjóðinni. Þannig myndast „fullkomin gróðrarstía fyrir popúlisma sem hann vonar að muni eyðileggja frjálslynt lýðræði okkar innan frá“.
Þjóðverjar tilbúnir að færa fórnir til að refsa Rússum
Ráðherrann segir, að gasskorturinn hafi leitt til ástands í Þýskalandi, sem er fordæmalaust sögulega séð:
„Ef ekki er til nóg gas, þá þarf að leggja niður ákveðin iðnaðarsvæði sem eru háð jarðgasi. Sem viðskipta- og iðnaðarráðherra er ómögulegt að taka góða ákvörðun í slíku máli – minnsta slæma ákvörðunin verður besta málið. Öll ferli markaðshagkerfisins verða þá rofin. Fyrir sumar atvinnugreinar væri það skelfilegt. Við erum ekki að tala um nokkra daga eða vikur heldur lengri tíma. Við erum að tala um fólk sem myndi missa vinnuna og svæði sem myndu missa heilu iðnaðarsamstæðurnar.“
Robert Habeck fullyrðir hins vegar, að þetta séu fórnir sem Þjóðverjar séu tilbúnir að færa til að refsa Rússum fyrir innrásina í Úkraínu.