Tilboð ÞG verktaka í byggingu skrifstofuhúss á Alþingisreit samþykkt

Tilboð ÞG verktaka vegna byggingar þriðja áfanga skrifstofuhúss á Alþingisreitnum hefur verið samþykkt.

Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis segir að gengið verði frá samningum á næstu dögum en kostnaðaráætlun verksins að lokinni yfirferð Fjársýslu ríkisins er 3.340.725.282 með virðisauka.

Um er að ræða uppsteypu og fullnaðarfrágang grunnhús auk fimmtu hæðar. Vonir standa til að vinna við aðstöðusköpun, lagfæringu á girðingu, uppsetningu vinnubúða, merkingar og fleira hefjist í næstu viku og eru verklok áætluð í lok apríl 2023.

Í byggingunni sem rís á milli Kirkjustrætis, Vonarstrætis og Tjarnargötu verða skrifstofur þingmanna, funda- og vinnuaðstaða fyrir þingflokka og starfsfólk þeirra, fundaherbergi fastanefnda og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk nefndanna. Öll þessi aðstaða er nú í leiguhúsnæði. Þá er gert ráð fyrir mötuneyti í nýbyggingunni

Framkvæmdasýsla ríkisins mun hafa umsjón með byggingaframkvæmdunum en arkitektar Studio Granda hlutu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína í hönnunarsamkeppni sem haldin var árið 2016. Aðilar hönnunarteymis eru Studio Granda og EFLA.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila