Umdeilt fóstureyðingarfrumvarp orðið að lögum

Frumvarp sem gerir ráð fyrir að fóstureyðingar séu heimilar allt að lokum 22 viku meðgöngu er orðið að lögum, en frumvarpið var samþykkt fyrir stundu á Alþingi. Óhætt er að segja að málið sé umdeilt en fjölmargir hagsmunaaðilar og hópar sérfræðinga hafa fjallað um málið að undanförnu, bæði utan þings og innan. Frumvarpið var samþykkt með 40 atkvæðum, 18 sögðu nei, þrír sátu hjá og voru tveir þingmenn fjarverandi. Hér að neðan má sjá hvernig atkvæðin skiptust.

Þessir þingmenn sögðu já:

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Alex B. Stefánsson, Andrés Ingi Jónsson, Ari Trausti Guðmundsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðjón S. Brjánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Andri Thorsson, Halla Gunnarsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Hanna Katrín Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Þór Ólafsson, Jón Steindór Valdimarsson, Katrín Jakobsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Kristján Þór Júlíusson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir, Willum Þór Þórsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Víglundsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Þessir þingmenn sögðu nei:

Ásmundur Friðriksson, Bergþór Ólason, Birgir Ármannsson, Birgir Þórarinsson, Bjarni Benediktsson, Brynjar Níelsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Inga Sæland, Jón Gunnarsson, Jón Þór Þorvaldsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Óli Björn Kárason, Páll Magnússon, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Þorsteinn Sæmundsson

Þeir sem sátu hjá eru:

Anna Kolbrún Árnadóttir, Haraldur Benediktsson, Njáll Trausti Friðbertsson

Fjarverandi voru þingmennirnir:

Vilhjálmur Árnason og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila