Könnun: Vilja að aðild Íslands að EES samningnum verði endurmetin

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja að aðild Íslands að EES samningnum verði endurmetin. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú láta endurmeta aðild Íslands að EES samningnum? Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 81,5%

Ætla að taka ákvörðum þegar búið er að afgreiða Orkupakkamálið á Alþingi  8,8%


Nei 7,1%

Hef ekki kynnt mér málið 2,5%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila