Íslenska utanríkisstefnan er þjóðinni hættuleg

Íslenska utanríkisstefnan er orðin þjóðinni hættuleg enda miðist hún ekki við hagsmuni Íslands heldur hagsmuni annara Evrópulanda og Þýskalands. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Halls Hallssonar sagnfræðings og blaðamanns í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar.

Hallur segir að ástandið á Alþingi megi til dæmis rekja beint til utanríkisstefnu landsins 

við sjáum niðurlægingu Alþingis, það er búið að framselja fullveldið úr landi, utanríkisstefnan ógnar auðlindum okkar, hún er ógn við orkuauðlindir okkar og fiskimiðin, ef við ætlum að fara þarna inn í Evrópusambandið þá verðum við að afhenda auðlindir okkar eins og tíðkaðist hér áður um margar aldir, þegar erlendir fiskimenn voru að veiða allt í kringum Ísland, þetta er galin stefna og stefnir einnig nágrannaríkjum okkar, Grænlandi og Færeyjum í hættu, því með því að afhenda auðlindir okkar þá er kominn fleygur á milli þessara nágrannaþjóða„,segir Hallur.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila