Könnun: Vilja ekki að erlendar vændiskonur fái að starfa á Íslandi

Íslendingar eru ekki á því að leyfa eigi erlendum vædiskonum að starfa á Íslandi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að ekki eigi að leyfa erlendum vændiskonum að starfa á Íslandi.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á að leyfa erlendum vændiskonum að starfa á Íslandi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei 73%
Já 24,6%
Hlutlaus 2,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila