Rétt upp úr þurru virðist allt í einu stjórnarsamstarfið sprungið milli krata og vinstri flokksins. Er það vegna s.k. janúarsamkomulags, sem kratar gerðu við Miðflokkinn og Alþýðuflokkinn, þar sem opnað var á fasteignafélög gætu sjálf ákveðið leiguverð á íbúðum til leigu. Fram að þessu hefur verðið verið háð samningum Félags leigjenda við fasteignafélögin. Vinstri flokkurinn var áður búinn að tilkynna, að ef ríkisstjórnin hyggðist gera alvöru úr „frjálsum“ leigumarkaði, þá myndi flokkurinn líta svo á, að grundvöllur til að styðja stjórnina væri brostinn.
Sænskir kratar eru svo vanir, að Vinstri flokkurinn mali alltaf við þeirra hlið, að þeir eru hættir að kippa sér upp við eitt og annað hvæs á stundum. Hingað til hefur hvæsið fljótlega breytst í nýtt mal, þegar gefið hefur verið lítillega eftir. Núna er hins vegar hvæs Vinstri flokksins lengra en venjulega og dugði ekki til, að innríkisráðherrann segðist ætla að hafa samband við Félag leigjanda. Formannsskipti voru í Vinstri flokknum í lok síðasta árs og tók Nooshi Dadgostar við sem formaður eftir Jonas Sjöstedt.
Fáir trúa því að Vinstri flokknum sé alvara
Nooshi Dadgostar hélt blaðamannafund 15. júní og gaf ríkisstjórninni tveggja sólarhringa frest til að draga tillögu sína til baka en áður en fresturinn rann út tilkynnti forsætisráðherrann, að ekki yrði gengið að kröfum vinstri flokksins. Stjórnarandstöðuflokkarnir á hægri vængnum eru vantrúaðir á að Vinstri flokkurinn standi við hótanir sínar í þetta sinn, því þeir hafa aldrei gert það áður, þegar þeir hafa hótað ríkisstjórninni. Það síðasta sem Vinstri flokkurinn vill sjá, er ríkisstjórn Svíþjóðardemókrata, Móderata, Kristdemókrata og Alþýðuflokksins ef sá flokkur nær tilskyldum 4% sem þarf til að komast inn á þing.
Engu að síður, þá lögðu Svíþjóðardemókratar eina ferðina enn vantrauststillögu á ríkisstjórn Löfvens sem greitt verður atkvæðagreiðsla um nú á mánudag. Staðan er aðeins lakari fyrir kratana, þar sem Alþýðuflokkurinn hefur gengið í lið með stjórnarandstöðunni. Móderatar, Kristdemókratar og Alþýðuflokkurinn hafa allir lýst yfir stuðningi við vantrauststillöguna og þá verður spurningin sú sama og áður: Standa Vinstri menn við hótanir sínar?
Svarið við þeirri spurningu kemur á mánudaginn – ef ekki fyrr.