Búist er við fremur mildu veðri um helgina en talsverðri úrkomu á höfuðborgarsvæðinu um helgina og því ekki útlit fyrir veðrið verði tíðindamikið yfir helgina. Eftir helgi fer hins vegar að kólna og snjóa nokkuð hressilega víða um land en snjókoman nær þó ekki til höfuðborgarsvæðisins og verður úrkoma þar í formi rigningar.
Höfuðborgarsvæðið
Norðan 5-13 m/s og léttskýjað, en hægari síðdegis. Þykknar upp í kvöld. Frost 0 til 5 stig. Hæg austlæg átt og skúrir eða slydduél á morgun og hiti nærri frostmarki.
Faxaflói
Norðlæg átt, 5-13 m/s og bjart með köflum og kólnandi veður, en suðvestlægari annað kvöld, skýjað og frost 3 til 10 stig.
Landið allt næstu daga
Á sunnudag:
Suðaustlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og úrkomulítið um morguninn. Fer að snjóa um og eftir hádegi með 0 til 8 stiga frosti, en rigning við SV- og V-ströndina og hiti 0 til 6 stig.
Á mánudag:
Austlæg eða breytileg átt 5-13 og dálitlar skúrir eða él. 8-15 m/s og snjókoma eða slydda seinnipartinn og frost 0 til 7 stig, en rigning SV-til með 1 til 7 stiga hita.
Á þriðjudag:
Snýst í norðan 8-15 með éljum á N- og A-landi, en styttir upp sunnan heiða. Frost 0 til 8 stig.
Á miðvikudag (fullveldisdagurinn):
Minnkandi norðlæg átt og dálítil él, en birtir til eftir hádegi. Talsvert frost víðast hvar.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri.
Fylgjast má með þróun veðurs í rauntíma með því að smella hér