Vegagerðin uppfærir hálendiskortið

Vegagerðin hefur sent frá sér uppfærða útgáfu háldiskortsins sem nú er gefið út í fimmta sinn.

Helstu breytingar frá síðasta korti: 

Sprengisandsleið (F26) Akstursbann var tekið af kaflanum frá Vatnsfellsvirkjun og upp að Versölum. Sá kafli er nú skráður ófær. 

Landmannaleið/Dómadalsleið (F225) er orðin fær fyrir 4×4. 

Öskjuleið (F88) er orðin fær fyrir 4×4. 

Austurleið (F910) er orðin fær fyrir 4×4 milli Dreka og Öskjuleiðar (F88) 

Unnið er að mokstri og heflun á Lakavegi (F206) og Lakagígavegi (F207). Einnig er unnið að mokstri á Fjallabaksleið nyrðri (F208) milli Eldgjár og Jökulgilskvíslar sem og á leiðinni inn að Langasjó (F235) 

Smelltu hér til þess að skoða hálendiskortið

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila