Þær hörðu aðgerðir sem Rússar hafa farið í gagnvart Kórónuveirunni hefur skilað mjög góðum árangri og eru Rússar á réttri leið í baráttunni að mati rússneskra yfirvalda og Vladimír Pútín forseta landsins. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hauks Haukssonar fréttaritara í Moskvu í þættinum Heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.
Haukur sagði frá því í þættinum hvernig atvinnubanninu í Rússlandi sé háttað, en bannið er sett upp á þann hátt að fólki er að sjálfsögðu heimilt að vinna heiman frá sér þau störf sem hægt sé að vinna á þann hátt, það séu þó fjölmörg störf sem hreinlega sé ekki hægt að vinna að heiman en vinnandi fólk sýni aðgerðir mikinn skilning og treysti ákvörðunum yfirvalda.
Alls ekki góð þróun að veiran verði að pólitísku bitbeini
Í þættinum kom fram að ásakanir á milli kínverja og ítala gangi á víxl og kenni löndin hverju öðru um uppruna veirunnar, en Haukur segir þá þróun alls ekki góða.
“ það er aldrei gott að veiran verði að pólitísku bitbeini milli þjóða og það getur leitt af sér ýmis vandamál og mögulega alvarlegar afleiðingar, því það er auðvitað orðið hápólitískt þegar ásakanir ganga á víxl, þetta er graf alvarlegt mál„,segir Haukur.
Hann segir að nú þegar sé útbreiðsla veirunnar orðin Evrópusambandinu þungur baggi
“ og þetta er auðvitað mikil prófraun á Evrópusambandið og mögulega framtíð þess, það er allt voðalega gott þegar allt er í lagi en svo kemur bara í ljós að þegar svona erfiðleikar steðja að þá er það mjög vanmáttugt„.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.