Veita 60 milljónum í félagsstarf eldra fólks í sumar í samvinnu við sveitarfélögin

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur ákveðið að veita 60 milljónir króna í verkefni til að efla félagsstarf fullorðinna á árinu 2022 í samvinnu við sveitarfélög landsins. Markmiðið með verkefninu er að auka framboð og möguleika til félagsstarfs nú þegar Covid-19 faraldurinn hefur runnið sitt skeið.

Vinna gegn einmanaleika og einangrun

Verkefnið er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem er ætlað að veita mótvægi vegna þeirra áhrifa sem faraldurinn hefur á viðkvæma hópa í samfélaginu og vinna gegn einmanaleika og einangrun eldra fólks.Sveitarfélögunum gefst kostur á að sækja um fjárframlag vegna sérstakra viðbótarverkefna í félagsstarfi fullorðinna sem miða að því að bjóða fjölbreytt úrræði. Sveitarfélögin geta sótt um styrk inn á island.is en hvert og eitt sveitarfélag mun geta sótt um 1.200 kr. styrk fyrir hvern íbúa í sveitarfélaginu sem er 67 ára og eldri, en lágmarksframlag verður ekki undir 100.000 kr.

Á tímum faraldursins máttu eldri borgarar víða um land  þola skerta samveru og félagslega einangrun vegna samkomutakmarkana og sjálfsskipaðrar sóttkvíar. Af þeim sökum er sérstaklega mikilvægt að leggja aukna áherslu á frístundaiðkun, geðrækt, hreyfingu og forvarnir með það að markmiðið að auka lífsgæði og heilbrigði fólks.

Styrkur í fyrra nýttur í harmonikkuball, grill og jóga

Samskonar verkefni voru í gangi á árunum 2020 og 2021 og verkefnin sem sveitarfélögin sóttu um styrk fyrir voru fjölbreytt enda stærð sveitarfélaganna mismunandi. Minnstu sveitarfélögin nýttu styrkinn meðal annars til að halda kaffisamsæti með uppákomu, gönguferðir með leiðsögn, harmonikkuball, golfmót og grill. Stærri sveitarfélögin buðu upp á verkefni á borð við ferðir á söfn, styttri gönguferðir, menningartengda viðburði, jóga, dans og aðra hreyfiþjálfun og tæknilæsinámskeið þar sem boði var upp á hóptíma, einstaklingþjálfun og fjarþjálfun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila