Viðreisn auglýsir eftir skýrslu sjávarútvegsráðherra um umsvif stærstu útgerðarfyrirtækjanna í íslensku atvinnulífi

Stjórnmálaflokkurinn Viðreisn birtir í dag athyglisverða smáauglýsingu í Fréttablaðinu í dag undir liðnum „Tapað – Fundið“ þar sem auglýst er eftir skýrslu Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, um umsvif tuttugu stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi.

Þá hefur flokkurinn einnig birt myndband á samfélagsmiðlum sínum þar sem einnig er lýst eftir skýrslunni og óskað eftir svörum frá ráðherra.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, átti frumkvæði að því að leggja beiðni um skýrsluna fram þann 17. desember á síðasta ári. Þingmenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins voru á skýrslubeiðninni ásamt þingflokki Viðreisnar.

Í tilkynningu Viðreisnar vegna málsins segir að sjávarútvegsráðherra hafi haft tíu vikur til þess að skila skýrslunni eða til 4. mars, en sé nú kominn fjórtán vikur fram yfir þá dagsetningu.  

Þá segir í tilkynningunni að það sé mat Viðreisnar að útséð sé um að skýrslan berist Alþingi fyrir þinglok. Viðreisn bindi þó vonir við að hún líti dagsins ljós fyrir þingkosningar í haust enda eru almannahagsmunir undir.

Það er mikilvægt að ítök stórútgerðarinnar í íslensku samfélagi séu ljós. Þetta eru aðilar sem hafa auðgast verulega í skjóli sérréttinda, það er lágmark að almenningur sem er hinn raunverulegi eigandi auðlindarinnar hafi þessar upplýsingar,“ segir Hanna Katrín.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila