Vilja að stjórnvöld veiti heimild til þess að sekta fyrirtæki sem svíkjast undan launagreiðslum – 56 launakröfur á borði Eflingar

Stéttarfélagið Efling kallar eftir því að stjórnvöld standi við loforð sitt um að koma á sektarheimildum á hendur þeim fyrirtækjum sem svíkjast undan því að greiða starfsfólki réttmæt laun. Þetta kemur fram í nýrri ársjórðungsskýrslu kjaramálasviðs Eflingar. Þar kemur meðal annars fram að alls voru 186 ný mál skráð á Kjaramálasviði Eflingar á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs að því er fram kemur í nýútkominni Ársfjórðungskýrslu sviðsins. Af heildarfjölda mála eru 56 launkröfur upp á ríflega 46 milljónir króna. 


Þá segir að fimm eða fleiri opnar launakröfur liggja hjá tveimur fyrirtækjum upp á samtals um 17 milljónir króna. Í skýrslunni kemur fram að misvel gangi að innheimta kröfurnar og berst stéttarfélagið fyrir því að stjórnvöld efni loforð sitt um sektarheimild “févíti” í því skyni að bæta árangur innheimtunnar. Af heildarfjölda launakrafna voru 15 kröfur í þrotabú upp á 17,3 mkr.


Af hátt í 25.000 greiðandi félögum í Eflingu voru um 54% af erlendum uppruna í nóvember. Hins vegar var hlutfall félagsmanna af erlendum uppruna sem leituðu til Kjaramálasviðs 64% á ársfjórðungnum. Mörg mál tengjast greiðslu uppsagnarfrests og kemur það heim og saman við að af 3.711 atvinnulausum Eflingarfélögum voru 75% af erlendum uppruna og 25% af íslenskum uppruna í október síðastliðnum.

Atvinnuleysi meðal Eflingarfélaga var á þessum tíma nokkuð hærra en annars staðar á vinnumarkaði. Atvinnuleysi meðal Íslendinga var 10,6% en atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara 24% í nóvember skv. tölum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi kemur því harðar niður á erlendum einstaklingum á vinnumarkaði en íslenskum og enn harðar niður á erlendu verka- og láglaunafólki en öðrum hópum erlendra starfsmanna á vinnumarkaði.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila