Vilja ekki að WHO fari með allsherjarvald í farsóttamálum heimsbyggðarinnar

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að WHO fari með allsherjarvald í farsóttamálum heimsbyggðarinnar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegið í gær en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að WHO fari með allsherjarvald í farsóttamálum heimsbyggðarinnar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 89,9%

Já 7,7%

Hlutlaus 2,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila