Vilja rannsóknarskýrslu um aðgerðir gagnvart heimilum landsins eftir hrun

Hagsmunasamtök heimilanna hafa skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að standa að gerð rannsóknarskýrslu á þeim ákvörðunum sem voru teknar og þeim aðgerðum sem farið var í gagnvart heimilum landsins eftir hrun.
Í tilkynningu segir að Hagsmunasamtök heimilanna beini því enn fremur til alþingismanna og annarra sem eiga að láta hagsmuni almennings sig varða að styðja og berjast fyrir rannsókn á því sem gert var eftir hrun.
Þá segir að í haust verði liðin 10 ár frá fjármálahruni og segja samtökin að tími sé kominn til að heimilin njóti vafans og fái uppreist æru í baráttu sinni við „kerfi“ sem sé þeim vægast sagt fjandsamlegt.
Í tilkynningunni segir enn fremur“ Það er ljóst að mjög margar af þeim aðgerðum sem farið var í eftir hrun ollu heimilum landsins stórfelldum skaða, skaða sem aldrei hefur verið viðurkenndur, skaða sem aldrei hefur verið metinn, skaða sem enn sér ekki fyrir endann á og heimilin sitja uppi með.
Hrunið sem ekki mátti persónugera með því að nefna neina þá sem léku aðalhlutverkin var persónugert í „Jónum og Gunnum“ þessa lands. Þeim hefur verið refsað og þau hafa borið byrðarnar á meðan afbrotamennirnir sjálfir hafa aðallega þurft að hafa áhyggjur af því að koma hagnaðinum, sem enn streymir til þeirra í gott skjól.
Það er því að mati samtakanna brýn þörf á sambærilegri rannsóknarskýrslu og þeirri sem gerð var um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna  en nú þarf að fjalla um aðgerðir stjórnvalda í kjölfar hrunsins og afleiðingar þeirra  fyrir heimili landsins.
Meðal þess sem samtökin telji þörf á að rannsaka er:
·        Stofnun nýju bankanna og yfirfærslu lánasafna gömlu bankanna til þeirra
·        Afhendingu stórra eignarhluta í bönkunum til þrotabúa föllnu bankanna
·        Úrlausnir mála vegna ólöglegra lánaskilmála og framferðis kröfuhafa
·        Hversu margar fjölskyldur hafa verið sviptar heimilum sínum frá hruninu
·        Hversu margar fjölskyldur voru hraktar að ósekju út á vonlausan leigumarkað og hver staða húsnæðismála væri núna ef það hefði ekki verið gert
·        Greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara sem hefur reynst mörgum illa
·        Ólöglegar vörslusviptingar ökutækja á grundvelli ólöglegra krafna
·        Skortur á samráði við fulltrúa neytenda og samtök þeirra
Samtökin benda enn fremur á að:
·        Verðtrygging húsnæðislána er skaðleg en hana er einfalt að afnema
·        Málsmeðferð við nauðungarsölur og aðfarir brýtur í bága við mannréttindi
·        Gengistryggð lán hafa ekki enn verið leiðrétt í samræmi við neytendarétt
·        Úrvinnsla slíkra mála hingað til hefur brotið í bága við stjórnarskrárvarin réttindi neytenda og skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum
·        Alþingi og dómstólar hafa verið blekkt af málflytjendum fjármálafyrirtækja
·        Endurskoða þarf þær breytingar sem gerðar voru á vaxtalögum með lögum nr. 151/2010 neytendum í óhag og stöðva aðfarir á hendur heimilum á meðan
·        Að dómstólar hafa ítrekað fellt dóma út frá hagsmunum fjármálafyrirtækja sem standast ekki skoðun út frá lögum og gildandi rétti.
Allar aðfarir og nauðungasöluferli þarf að sjálfsögðu að stöðva meðan á gerð skýrslunnar stendur – enda komið nóg af slíkum ófögnuði!
Þá segja samtökin að þau bjóði fram aðstoð sína við rannsóknina því innan þeirra vébanda leynist gífurleg þekking á málaflokknum auk ýmissa gagna sem rannsóknaraðilum væri fengur að.
Við væntum skjótra svara um aðgerðir frá forsætisráðherra. Tíminn er að renna út, við höfum beðið í meira en 9 ár þau mega ekki verða 10.„segir í tilkynningunni.
Í síðdegisútvarpinu í dag komu þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Guðmundur Ásgeirsson erindreki samtakanna og ræddu um málið og kröfu samtakanna, en í þættinum sögðu þau meðal annars frá ótrúlegum vinnubrögðum banka og ýmissa stofnanna samfélagsins í málefnum heimilanna. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila