Lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkuð

Matsfyrirtækið Moody‘s hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun. Í tilkynningunni segir að lánshæfiseinkunn án ríkisábyrgðar hafi verið hækkuð úr staðlinum  Baa1 úr Baa2 og með ríkisábyrgð í A3 úr Baa1. Þá segir að horfurnar framundan séu metnar stöðugar.

Að mati Moody‘s endurspeglar hækkun á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar án ríkisábyrgðar stöðuga styrkingu á fjárhagsstöðu fyrirtækisins, þar á meðal áframhaldandi lækkun skulda og minni markaðsáhættu. Grunneinkunn Landsvirkjunar hækkar, en hún gefur til kynna fjárhagslegan styrk fyrirtækisins án stuðnings frá eiganda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila