ZELENSKY SMÁN ALÞINGIS

Hallur Hallsson skrifar:

Daginn sem Volodymyr Zelensky ávarpaði Alþingi Íslendinga bárust fréttir um að hann væri flúinn land & ekki lengur í Kænugarði eða Lvyv heldur í Póllandi. Rússneska fréttastofan Sputnik hafði þetta eftir talsmanni rússnesku Dúmunnar en orðrómur þessa efnis hefur verið um nokkurt skeið. Úkraínsk stjórnvöld hvorki játa né neita. Orðrómur þessa efnis hefur verið að undanförnu & rétt að árétta að er sem er, orðrómur.

Öll erum við á móti stríði & gagnrýnin á innrás Rússa í Úkraínu & finnum til með sárþjáðum íbúum Úkraínu sem hafa mátt þola hörmungar styrjalda um alder; Holomodyr Stalíns hungursneyðina illræmdu, innrás nazista  1941; nú síðast stofnfrumur fóstra & nýfæddra barna.

Þetta vil ég árétta en hef hins vegar harðlega gagnrýnt vetrænar þjóðir, útþenslu Nato & alveg sérstaklega Bandaríkin sem með valdaráninu 2015 – Coup de’Etat – kveiktu þá elda sem nú loga líkt & Afganistan, Írak Sýrlandi & Lýbýu. Úkraínska þjóðin þjáist & sannarlega hef ég með samúð með því stórkostlega fólki sem er leiksoppur siðlausra glóbalizta sem hafa gert landið að útlagaríki ‘rouge-state’ peningaþvættis & glæpa.

Zelinsky mæltist vel líkt & góðum leikara en niðurlægði Alþingi með lygum & blekkingum. Sýningin á Alþingi var drullumix. Zelensky er ekki lýðræðissinni, langur vegur frá. Þann 20. mars bannaði hann alla stjórnarandstöðuflokka Úkraínu – ellefu talsins & frjálsa fjölmiðla sem hann bræddi í rúvízka lygaveitu. Guðna Th. & Katrínu Jak mæltist afleitlega. Í stað innantóms blaðurs um lýðræði hefðu þau getað hvatt Zelensky til að endurreisa lýðræði í Úkraínu, frjálsa fjölmiðla & virða sjálfsákvörðunarrétt þjóðarbrota í stað þess að ofsækja.

Þau hefðu getað hvatt Zelensky til að leggja niður vígasveitir Azov-nazista en hann hefði þá líklega sagt eins & jafnan áður: ‘They are what they are’. Já, nazískar vígasveitir í úkraínska hernum sem hafa herjað á óbreytta borgara í Donbass & Lugansh síðan 2014 & drepið með köldu blóði allt að 20.000 manns; karla konur & börn. Þau hefðu getað gagnrýnt Ameríku fyrir valdaránið 2015 Coup de’Etat í Kænugarði þegar 50 mótmælendur voru skotnir til bana af nazískum vígasveitum. Þau hefðu getað hvatt Zelensky til að upplýsa um morðin 2014-15 á Evru-torgi & líka þegar ungt fólk var brennt inni í verkalýðshúsinu í Odessa, 40 manns. Þau hefðu getað hvatt Zelensky til að virða óskir íbúa Donbass & Lugash um sjálfsforræði líkt & Kosóvó þegar Nato sprengdi Belgrad í tætlur fyrir að virða ekki sjálfákvörðunarrétt íbúa. Af hverju fá íbúar Donbass & Lugansk ekki að ræða örlögum sínum líkt & múslimar í Kosóvo. Þau hefðu getað spurt Zelensky um milljarðana í skattaskjólum.

Og það sem brýnast er. Þau hefðu getað hvatt Zelensky til að stöðva dráp á fóstrum & nýfæddum börnum í Úkraínu. Þau hefðu getað spurt Zelensky hvers vegna Úkraína sé miðstöð fóstur-stofn-frumu meðferðar í veröldinni. Þau hefðu getað spurt um stofnfrumu meðferð á Þjóðarsjúkrahúsinu í Kænugarði. Þau hefðu getað spurt um löggiltan stofn-frumu-banka í Úkraínu. Þau hefðu getað spurt um stofn-frumu klíník & af hverju Úkraína sé eina landið í veröldinni sem slíkt leyfir. Þau hefðu getað spurt um bio-labin. Þau hefðu getað spurt um brottnám nýfæddra barna frá mæðrum. Þau hefðu getað spurt um uppljóstranir þessa efnis & viðbrögð Evrópuráðsins.

Þau hefðu getað spurt hvað hann, Volodymyr Zelensky hafi gert til að koma í veg fyrir barnsal & barnamorð. Hvernig Úkraína hafi brugðist við ábendingum Evrópuráðsins þar að lútandi, samanber frétt BBC 2006 um brottnám barna af rússneskum mæðrum í Kharkív, fjöldagröf 30 barna þar sem þau fannst:  ‘In its report the [European] Council describes a general culture of trafficking of children snatched at birth, and a wall of silence from hospital staff upwards over their fate. The pictures show organs, including brains that have been stripped and some bodies dismembered.’

‘… barnsal nýfæddra barna tekin af mærðum við fæðingu … þagnarmúr starfsfólks sjúkrahúss um örlög barnanna …’. Ég treysti mér ekki til að ljúka þýðingu þessa texta Evrópuráðins en læt fylgja frétt BBC sem nú hylmir yfir skelfingunni sem viðgengst í Úkraínu. 

              Margs að spyrja, ekki satt?

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila