Roger Waters, söngvari og bassaleikari Pink Floyd, var staddur á stuðningsfundi Julian Assange í Bretlandi, þegar enginn annar en sjálfur Mark Zuckerberg hafði samband. Vildi Zuckerberg kaupa réttinn að laginu Another Brick in the Wall (Part2) til að nota í auglýsingu fyrir Instagram. Að sögns Roger Waters bauð Zuckerberger gríðarlega háa upphæð en á svari tónlistarmannsins var auðskilið að Zuckerberger hefði ekki fengið réttinn, þótt hann byði allan auð í heiminum. Roger Waters hélt uppi blaði með bréfi Zuckerbergs og sagði:
Vilja nota lagið til að ritskoða sannleikann um Julian Assange
„Þetta er bréf frá Mark Zuckerberg, sem kom til mín í morgun með boði um gríðarlega, gríðarlega mikla peningafúlgu og svarið er Farðu til fjandans! – (Fuck you!)“
Waters telur að Facebook og Instagram stuðli að því með ritskoðun, að Julian Assange er í haldi í fangelsi með verstu glæpamönnum Bretlands.
„Þeir vilja nota lagið (Another Brick in the Wall (Part 2)) til þess að gera Facebook og Instagram enn þá stærri og voldugari en þeir eru nú þegar, svo þeir geti haldið áfram að ritskoða okkur öll sem erum samankomin hér og hindra að sannleikurinn um Assange nái út til almennings.“
Zuckerberg einn valdamesti „fáviti“ í heiminum
Roger Waters sagði, að netrisarnir vildu stjórna öllu og hann vildi ekki vera með í því, að þeir tækju völdin af hljómsveitinni Pink Floyd og stjórnuðu því, hvernig lög hljómsveitarinna væru notuð. Hann spurði einnig „hvernig Zuckerberg tókst að verða að einum helsta fávita í heiminum.“ Myndband má sjá hér að neðan, þegar Waters bregst við tilboði Zuckerbergs.